Framsýn stéttarfélag sendi eftirfarandi yfirlýsingu út á heimasíðu félagsins nú í morgun vegna hins hörmulega sjóslys sem var í gær þegar Jökull ÞH fórst.
Framsýn stéttarfélag tekur heilshugar undir orð forseta Íslands og eiginmanns hennar sem birtust í fjölmiðlum í morgun og tengjast hörmulegu sjóslysi:
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, senda innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina sjómannanna þriggja sem létust í sjóslysinu fyrir austan.
„Þakklæti fyrir þau mannslíf sem tekist hefur að bjarga blandast djúpri sorg yfir þeim sem við misstum. Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda. Við færum Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, áhöfnum Skinneyjar, Svans og Harðbaks, heilbrigðisstarfsfólki og öllu því góða og hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við afar erfiðar aðstæður.
Á sorgarstund sem þessari stöndum við saman sem þjóð. Megi samheldni og kærleikur veita okkur styrk.“
Þess má geta að félagsmenn Framsýnar voru í áhöfn Jökuls ÞH 299 sem sökk um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis í gær. Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar samkvæmt því sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Um er að ræða hörmulegt sjóslys sem snertir okkur öll en jafnframt mikið björgunarafrek, það er þrekvirki við einstaklega erfiðar aðstæður. Þá er ekki hægt annað en að minnast á hetjudáð skipverja á Jökli sem þeir sýndu með samstöðu sinni í kjölfar slyssins, þeir skyldu engan eftir. Framsýn mun gera sitt besta til að standa við bakið á áhöfn Jökuls, fjölskyldum þeirra og aðstandendum þeirra sem féllu frá.
Hugur okkar er hjá ykkur. Þá viljum við þakka öllum þeim fjölmörgu sem hafa sett sig í samband við Framsýn og vottað aðstandendum og samfélaginu öllu dýpstu samúð um leið og boðin hefur verið fram aðstoð.
.