Akureyrarbær hefur úthlutað hundaeigendum 3000 fermetra svæði norðan Borga við Norðurslóð og verður það afgirt hundasvæði til næstu fimm ára. Hundaeigendur á Akureyri hafa lengi barist fyrir svæði innan bæjarmarkanna.
Við fögnum þessu en þetta er það sem fólk hefur verið að bíða eftir. Við erum himinsæl, segir María Björk Guðmundsdóttir formaður Félags hundaeigenda á Akureyri.
Það er jákvætt að bærinn vilji koma til móts við okkur með þessum hætti, því þetta er krafa hundaeigenda. Hundum fer fjölgandi í bænum og eru orðnir hluti af okkar samfélagi í dag, segir María, en um 600 hundar eru skráðir á Akureyri.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags
throstur@vikudagur.is