Erill hjá leigubílstjórum við höfnina

Það er oft líf og fjör við Akureyrarhöfn þessa dagana.
Það er oft líf og fjör við Akureyrarhöfn þessa dagana.

Þeir eru margir sem njóta góðs af komum skemmtiferðaskipa til Akureyrar og þar af eru leigubílstjórar sem fara margar ferðir með farþega af skipunum. Leigubílstjóri sem Vikudagur ræddi við sagði meira vera að gera núna í sumar en undanfarin ár. Vinsælustu áfangastaðirnir eru sem fyrr Goðafoss, Laufás og Mývatn. „En svo er fólk að fara hingað og þangað að skoða. Það er nóg að gera hjá okkur í sambandi við þetta og við getum ekki kvartað. Það er hins vegar rólegt hjá okkur í akstrinum að öðru leyti yfir sumartímann og ferðafólkið heldur okkur við efnið,“ sagði hann.

Sífellt stærri skemmtiferðaskip leggja leið sína til Akureyrar og er áætlað að farþegum muni fjölga um 35 prósent í sumar, miðað við sumarið í fyrra.

 

Nýjast