Á Norður- og á Norðausturlandi er búið að moka Víkurskarð og Tjörnes og verið er moka Melrakasléttu og Hálsa. Ófært
á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur og ekki verður athugað með mokstur þar fyrr en á morgun. Á Austurlandi er hálka,
snjóþekja, skafrenningur eða hálkublettir á flestum leiðum.
Á Suðausturlandi eru vegir greiðfærir. Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir. Hálka eða hálkublettir eru víða á
Vesturlandi og í Hrútafirði. Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þetta kemur fram á vef
Vegagerðarinnar.