Enn eitt toppárið í mjólkurgæðum hjá framleiðendum á svæðinu

Enn eitt árið náðu mjólkurframleiðendur sem leggja inn mjólk hjá MS á Akureyri glæsilegum árangri í mjólkurgæðamálum. Þetta eru framleiðendur úr Eyjafirði og S-Þingeyjarsýslu. Af um 650 mjólkurframleiðendum á svæðum MS hlutu 42 mjólkurframleiðendur sérstaka viðurkenningu fyrir úrvalsmjólk og þar af voru 25 af svæði MS á Akureyri en þar eru 160 bú.  

Reglur um úrvalsmjólk eru afar strangar og þurfa framleiðendur að vera með úrvalsmjólk í öllum mánuðum ársins til að hljóta sérstaka viðurkenningu. Álag (bónus) á innveginn líter mjólkur vegna úrvalsmjólkur á árinu 2010 er 2% af  afurðastöðvaverði mjólkur eða um 1,42 kr. á verðlagi dagsins í dag svo það er eftir nokkru að slægjast að hafa mjólkurgæðin í þessum flokki. Auk þess var innveginn mjólk úr Eyjafirði og S- Þingeyjarsýslu með lægsta líftölu (gerlatölu) og frumutölu allra svæða á landinu.

Nýjast