02. nóvember, 2012 - 15:56
Stefán Baldursson hjá Strætisvögnum Akureyrar segir að nú sé útlitið þannig að reynt verði að keyra til kl. 17 en líklega verði sjálfhætt eftir það. Ljóst er að það verða engar strætisvagnaferðir í bænum eftir kl. 19 í kvöld. Staðan verður tekin snemma í fyrramálið og þá sendar út upplýsingar og birtar á Akureyri.is um hvernig akstri verður háttað á morgun.