Oddeyrin EA 210 , frystitogari Samherja kom til Akureyrar á dögunum eftir viðamiklar breytingar í Póllandi. Skipið heldur þó ekki strax til veiða, því innlendur vinnslubúnaður verður settur í skipið og tekur það verk líklega einn mánuð.
Þetta eru nokkuð miklar breytingar sem gerðar voru í Póllandi. Skipið var lengt um rúma 10 metra, þannig að lengdin í dag er um 65 metrar. Með lengingu eykst frystirýmið og burðargetan til muna auk þess að frystibúnaður var endurnýjaður og stækkaður. Búnaður til brennslu svartolíu var og settur í skipið. Með lengingunni verður skipið mun léttara á sjónum, það dregur úr olíueyðslu , ennfremur er svartolíunotkun ódýrari kostur. Eldsneytiskostnaður er mjög stór liður í rekstri slíkra skipa þannig að það er til mikils að vinna, segir Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja.
Nánar um málið í prentútgáfu Vikudags.