Endurbætt Oddeyrin EA komin til heimahafnar

Oddeyrin EA 210 , frystitogari Samherja kom til Akureyrar á dögunum eftir viðamiklar breytingar í Póllandi. Skipið heldur þó ekki strax til veiða, því innlendur vinnslubúnaður verður settur í skipið og tekur það verk líklega einn mánuð.

„Þetta eru nokkuð miklar breytingar sem gerðar voru í Póllandi. Skipið var lengt um rúma 10 metra, þannig að lengdin í dag er um 65 metrar. Með lengingu eykst  frystirýmið og burðargetan  til muna auk þess að frystibúnaður var endurnýjaður og stækkaður. Búnaður til brennslu svartolíu var og settur í skipið. Með lengingunni verður skipið mun léttara á sjónum, það dregur úr  olíueyðslu , ennfremur er  svartolíunotkun  ódýrari kostur. Eldsneytiskostnaður er mjög stór  liður  í rekstri slíkra skipa  þannig að það er til mikils að vinna,“ segir Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja.

Nánar um málið í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast