Ellen og Þorsteinn á sumar- tónleikum í Akureyrarkirkju

Sumartónleikaröðin í Akureyrarkirkju heldur áfram í dag, sunnudaginn 18. júlí kl. 17.00, en nú er það hin ástsæla söngkona Ellen Kristjánsdóttir sem kemur fram ásamt Þorsteini Einarssyni gítarleikara. Á efnisskránni er hugljúf tónlist sem Ellen er þekkt fyrir að flytja á sinn einstaka hátt og er aðgangur ókeypis.  

Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir fæddist í San Fransisco en hefur búið í Reykjavík frá sjö ára aldri. Ellen hefur sungið inn á fjölda geisladiska með ýmsum listamönnum, þar á meðal með hljómsveitinni Komboid og tríóinu Borgardætur. Einnig hefur hún gefið út þrjá diska í eigin nafni.

Nýjast