Bæjarráð Akureyrar telur ekki rétt að efna til sérstakrar könnunar um sauðfjárbeit í Hrísey eins og hverfisráð
Hríseyjar lagði til, samhliða sveitarstjórnarkosningunum. Bæjarráð telur mikilvægt að áfram verði leitað leiða til þess
að bregðast við þeim vágesti sem útbreiðsla skógarkerfils er í Hrísey og því er eðlilegt að gera tilraun með
sauðfjárbeit í afmörkuðum hólfum til að bregðast við þessum vanda.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að fyrir liggi jákvæð afstaða viðkomandi yfirvalda til þessarar leiðar áður en lengra er
haldið.