Hún segir það oft hafa verið nefnt á nafn undanfarin ár að hafa sólarhringsopnun fyrir gesti í 1-2 daga yfir sumartímann. „Við vorum að tala um það nú síðast í vetur hvort við ættum að prófa þetta núna í sumar. Þessu fylgir hins vegar mikið skipulag og mikill kostnaður og þegar það má ekki taka mikinn sjens með kostnað að þá er þetta erfitt," segir Elín, en útilokar ekki að gestir sundlaugarinnar fái að njóta miðnætursunds í nánustu framtíð. „Það væri mjög gaman að prófa þetta og þetta gæti vel orðið að veruleika síðar meir þó það verði ekki í sumar,” segir Elín.