Eivör heldur útgáfutónleika á Græna hattinum

Eivör.
Eivör.

Söngkonan Eivör stígur á stokk á Græna hattinum á laugardags-og sunnudagskvöldið næstkomandi og heldur útgáfutónleika þar sem hún mun kynna nýútkomna plötu sína "Room". Eivör mun einnig syngja gamlar perlur og aðdáendur söngkonunar ættu ekki að láta þetta framhjá sér fara. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Það verður annars nóg í boði fyrir tónlistarþyrsta á Græna hattinum um helgina.

Kvartett Andrésar Þór kemur fram á Heitum fimmtudegi í kvöld og hefjast tónleikarnir kl. 21:00. Þar leika þér félagar m.a. efni af nýrri plötu Andrésar "Mónókróm" sem fengið hefur lofsamlega dóma hjá ýmsum Jazztímaritum og vefmiðlum. Á morgun, föstudag, er það hljómsveitin Varsjárbandalagið sem sér um fjörið með tónleikum sem hefjast kl. 22:00, en þetta mun vera í annað sinn sem hljómsveitin leikur á Akureyri. Varsjárbandalagið leikur tónlist austantjaldslanda, gyðingatónlist, Balkan og annað sem rekur á fjörur sveitarinnar.

Nýjast