Aðsóknin hefur verið mjög góð í júní enda veðrið búið að vera frábært. Það er alltaf stemmning hjá okkur í sundlauginni þegar sólin skín og léttleikinn í fyrirrúmi hjá fólki. Þetta er eins dásamlegt og best verður, segir Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar.
Bæjarbúar hafa fengið dágóðan skammt af veðurblíðu undanfarna daga og margir notað tækifærið
og skellt sér í sund. Það er langt síðan að við höfum fengið svona glæsilega byrjun í júní. Það er nánast búin að vera sól frá mánaðarmótum og í þessi sex ár sem ég hef unnið hérna hef ég aldrei upplifað aðra eins byrjun á sumrinu hvað aðsókn varðar. Hér hefur verið handagangur í öskjunni og mikið álag á starfsólki. En það hefur allt gengið vel, segir Elín.
Nánar er rætt við Elínu í prentútgáfu Vikudags