Nú er skólastarf í grunnskólum bæjarins að hefjast og þeim tilmælum er því beint til eigenda ferðavagna að fjarlægja þá af bílastæðum við skólana.
Heimilt var að leggja hjólhýsum og öðrum ferðavögnum á bílastæðin yfir hásumarið og hefur því verið vel tekið. Nú er hins vegar runninn upp sá tími að eigendur ferðavagnanna þurfa að taka þá aftur í sína vörslu svo starfsfólk skólanna geti nýtt bílastæði við vinnustað sinn.
Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar