Dýrara í Sundlaug Akureyrar en aðrar laugar bæjarins

Nú um áramótin urðu breytingar á gjaldskrám í sundlaugar Akureyrarbæjar. Eins og fram hefur komið fá börn á grunnskólaaldri, 6-15 ára, frítt í sund en á síðasta ári greiddi þessi aldurshópur 100 krónur. Gjald fyrir fullorðna hækkar og eru nú 350 krónur í sundlaug Glerárskóla og sundlaugarnar í Hrísey og Grímsey en sem fyrr er dýrara í Sundlaug Akureyrar en þar kostar 450 krónur kostar í sund fyrir fullorðna.  

Þá kostar 10 miða kort í Sundlaug Akureyrar 3.700 krónur en 2.900 krónur í hinar laugarnar þrjár. Þriggja mánaða kort, sem gildir í allar laugar bæjarins, kostar 11.000 krónur, sambærilegt 6 mánaða kort kostar 21.000 krónur og 12 mánaða kort 35.000 krónur.

Nýjast