Davíðskvöld í Ketilhúsinu á fæðingardegi skáldsins frá Fagraskógi

Fimmtudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 verður Davíðs Stefánssonar skáldsins  frá Fagraskógi minnst í Ketilhúsinu á Akureyri en skáldið fæddist þennan dag árið 1895.  Ekki er um stórafmæli að ræða heldur notalega kvöldstund þar sem boðið verður upp á lestur ljóða, tónlist og söng.  

Fram koma Erlingur Sigurðarson, kvæðamaður sem mun flytja nokkur ljóð Davíðs og segja frá tilurð þeirra.  Karlakór Akureyrar - Geysir mun einnig flytja í söng nokkur af þekktustu ljóðum Davíðs, s.s. "Þú komst í hlaðið" og "Brennið þið vitar".  Tvö ungmenni úr Menntaskólanum á Akureyri, þau Gísli Björgvin Gíslason og Gréta Ómarsdóttir flytja kvæðin um "Nirfilinn" og "Hvað hefur breyst".  Tríó skipað þeim Ásdísi Arnardóttur á selló, Petreu Óskarsdóttur á
þverflautu og Þórarinn Stefánsson á píanó flytja ljúfa tónlist eftir Skúla Halldórsson og Maurice Ravel sem víst er að fagurkeranum Davíð hefði fallið vel í geð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Nýjast