Dansgjörningurinn “Sláturhús hjartans” frumfluttur á Hjalteyri

Dansgjörningurinn "Sláturhús hjartans" verður frumfluttur í listrými Verksmiðjunnar á Hjalteyri við Eyjafjörð í dag, laugardaginn 15. maí kl. 17:00. Höfundar verksins eru Anna Richards dansgjörningalistakona og Sigurbjörg Eiðsdóttir myndlistakona.  

Flytjandi verksins er Anna Richards en í verkinu koma fram, auk Önnu, Hallgrímur J. Ingvason tónlistamaður, Helga Rós Indriðadóttir sópransöngkona, Sigurður Hólm Sæmundsson björgunarsveitamaður og Karlakór Dalvíkur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Sviðsstýra og ljósmóðir verksins er Lene Zachariassen.

Í verkinu er fjallað um ferðalag mannveru innan völundarhúss hjarta síns og þau átök  sem þar eiga sér stað og leiða hana í gegnum ferli ástríðna, uppgjafar, ótta, skilnings og umbreytinga. Umgjörð verksins er unnin inn í rými gömlu síldarbræðslunnar á Hjalteyri og er áhorfendum frjálst að færa sig til í rýminu á meðan á flutningi verksins stendur því einnig er hægt að fylgjast með verkinu af annarri hæð hússins.

Tónlist í verkinu er að hluta frumsamin og flutt sem spunaverk þar sem dansari og tónlistarmenn spinna saman. Rúta fer frá Listasafninu á Akureyri kl. 16:30 Enginn aðgangseyrir. Kaffi Lísa á Hjalteyri er opið.

Nýjast