Dagur hinna villtu blóma verður haldinn á sunnudaginn

Dagur hinna villtu blóma verður haldinn sunnudaginn 13. júní á fjórtán stöðum víðs vegar um landið. Þá verður boðið upp á stutta gönguferð með plöntuskoðun fyrir alla fjölskylduna.  

Eyfirðingar geta valið um tvær gönguferðir:
1. Eyjafjarðarsveit: Mæting kl. 10:00 við hliðið á skógarreitnum við Grund. Leiðbeinendur Hörður Kristinsson og Helgi Þórsson.
2. Akureyri: Mæting kl. 14:00 við hlið Naustaborga að norðaustan skammt ofan Sómatúns í Naustahverfi. Leiðbeinandi: Hörður Kristinsson
Nánari upplýsingar má finna á www.floraislands.is/blomdag.htm

Nýjast