Búist við straumi fólks norður í dag

Mynd: Þórhallur Jónsson.
Mynd: Þórhallur Jónsson.

„Þetta fer vel af stað og lofar góðu upp á framhaldið. Það er góð veðurspá framundan en þó þokan þvælist fyrir okkur núna að þá fer sólin að að brjótast í gegnum þetta,” segir Pétur Guðjónsson talsmaður hátíðarinnar Ein með öllu sem fram fer á Akureyri um helgina. Hann segir ekki mikið af fólki komið til bæjarins ennþá en býst við þungum straumi í dag.

„Það er kominn smá reitingur á tjaldsvæðið við Þórunnarstræti. Það var reyndar haft eftir mér á ákveðnum fjömiðli í gær að allt væri orðið fullt þar sem er ekki allskostar rétt. Það er þokkalegur fjöldi þar en fremur rólegt á tjaldsvæðinu að Hömrum. En eins og undanfarin ár eru engar mælingar í gangi aðrar en þær sem augað sér af mannlífinu í bænum,” segir Pétur.

Dagskráin um helgina er þéttskipuð og hefur aldrei verið meiri að sögn Péturs, en það kemur til vegna 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Formleg dagskrá hófst í gær með útitónleikum í göngugötunni sem sjónvarpsstöðin N4 stóð fyrir og heppnaðist vel. Það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi um helgina en alla dagskrán má finna á www.einmedollu.is.

Nýjast