Búðargluggar í miðbæ Akureyrar illa merktir

Miðbærinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Miðbærinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Einungis 25% verslana í miðbæ Akureyrar er með góðar eða ásættanlegar verðmerkingar í gluggum. Engar eða mjög lélegar merkingar er að finna í 75% tilfella. Neytendasamtökin könnuðu verðmerkingar í gluggum 28 verslana í miðbæ Akureyrar 10. júlí sl. Í ljós kom að einungis 25% verslana í miðbænum eru með mjög góðar eða þokkalegar verðmerkingar í gluggum. Alltof margar verslanir eru með engar eða ófullnægjandi verðmerkingar eða 75%. Mjög góðar merkingar voru í gluggum verslananna GS, Didda Nóa, Janus og Skóhúsinu. Í sumum verslunum voru merkingar þokkalegar en í allt of mörgum tilfellum voru engar verðmerkingar sýnilegar.

Samkvæmt reglum um verðmerkingar  eiga söluvörur að vera verðmerktar hvar sem þær eru til sýnis svo sem í búðargluggum, sýningarkössum, á vefsíðum eða annars staðar. Markmiðið með slíkum reglum er m.a. að efla verðvitund neytenda og efla þannig samkeppni. Samtökin hvetja verslunareigendur til að fara að lögum og verðmerkja allar söluvörur þar sem þær eru til sýnis. Góðar verðmerkingar í gluggum geta auk þess virkað söluhvetjandi og því skýtur skökku við að seljendur skuli almennt ekki sinna þessu betur, segir í frétt frá Neytendasamtökunum.

 

Nýjast