Breytingar hjá Keahótelum

Gengið hefur verið frá kaupum á öllu hlutafé í Hvönnum ehf, móðurfélagi Keahótela ehf. Félagið rekur fimm hótel á Norðurlandi og í Reykjavík - hin sögufrægu Hótel Kea á Akureyri og  Hótel Borg í Reykjavík og enn fremur Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg við Mývatn og Hótel Björk í Reykjavík. Kaupendur eru Páll L. Sigurjónsson, Fannar Ólafsson, Kristján Grétarsson,  Einar Bollason og Andri Gunnarsson en gengið var frá kaupunum með milligöngu Landsbankans. Páll L. Sigurjónsson er einn af stofnendum fyrirtækisins og framkvæmdastjóri frá upphafi og mun hann gegna því starfi áfram. Fannar Ólafsson er framkvæmdastjóri Íshesta ehf en hann og Kristján Grétarsson eiga meirihluta í því félagi. Kristján er jafnframt framkvæmdastjóri hjá Mjöll Frigg ehf. Einar Bollason var stofnandi og er núverandi stjórnarformaður Íshesta. Andri Gunnarsson er lögmaður hjá Nordik Legal. Starfsemi félagsins mun halda áfram í óbreyttri mynd.

Nýjast