Íþróttabandalag Akureyrar efnir til fundar um íþróttamál í kvöld, miðvikudaginn 7. apríl kl. 20:00 í
Brekkuskóla. Fulltrúar frá þremur íþróttafélögum flytja stutt erindi um rekstur og framtíðarhorfur félaganna.
Fulltrúar allra framboða til komandi bæjarstjórnarkosninga ávarpa fundinn og kynna áherslur sínar í íþróttamálum.
Pallborðsumræður verða að loknum framsöguerindum.