Borgarafundir um einelti og ungt fólk, netið og ábyrgð samfélagsins

Í vikunni verða opnir borgarafundir í eineltisátakinu haldnir á Sauðárkróki og Akureyri. Fundirnir eru liður í átaki sem Heimili og skóli - landssamtök foreldra, Liðsmenn Jerico, Olweusaráætlunin og Ungmennaráð SAFT standa fyrir í samstarfi við Símann, mennta-  og menningarmálaráðuneytið, félags- og tryggingamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og styrktaraðila, með fundum sem haldnir eru á 11 stöðum á landinu.   

Fundurinn á Sauðárkróki verður í Húsi Frítamans á morgun þriðjudag og í sal Brekkuskóla á Akureyri miðvikudaginn 6. október, kl. 20:00. Umfjöllunarefni fundanna er einelti og ungt fólk, netið og ábyrgð samfélagsins. Leikhópar unglinga undir handleiðslu leiklistarkennara eða leiðbeinanda á hverjum stað, setja upp leiksýninguna „Þú ert það sem þú gerir á netinu" eftir Elítuna og Rannveigu Þorkelsdóttur.

Fundir hafa verið haldnir í Árborg, á Ísafirði og í Reykjanesbæ og framundan eru fundir á eftirtöldum stöðum til viðbótar: Grundarfirði 12. október, Fljótsdalshéraði 19. október, Borgarbyggð 21. október, Vestmannaeyjum 26. október, Höfn í Hornafirði 28. október og í Reykjavík 3. nóvember.

Nýjast