Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs og Böðvar Þórir Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks karla, hafa í sameiningu
ákveðið að leiðir skilji eftir eins árs samstarf, en frá þessu er greint á heimasíðu Þórs.
Böðvar tók við liðinu síðastliðið vor eftir sárt fall úr efstu deild og tók við gjörbreyttu liði frá
árinu áður. Undir hans stjórn lenti liðið í 8. sæti fyrstu deilda með 6 sigra í 18 leikjum.