Blóðgjöfum fer fjölgandi

Stjórn Blóðgjafafélags Íslands var á Akureyri í síðustu viku og heimsótti þá m.a. útibú Blóðbankans á FSA. Við það tækifæri mætti Arnór Þorgeirsson starfsmaður FSA í blóðgjöf í 94. skipti en hann er sá einstaklingur sem oftast hefur gefið blóð í Blóðbankanum á Akureyri.

 

Einnig voru mættir til að gefa blóð þeir Tryggvi Gunnarsson bæjarfulltrúi L-listans og vallarstjóri á Akureyrarvelli og Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri KA. Tryggvi var að gefa blóð í 54. skipti og Gunnar í 37. skipti. Ólafur Helgi Kjartansson formaður Blóðgjafafélagsins sagði að tilgangur ferðarinnar norður hefði verið að koma á tengslum við starfsfólk Blóðbankans á Akureyri, kynnast starfseminni og efla tengsl við blóðgjafa á svæðinu. Þá var ný vefsíða Blóðgjafafélags Íslands, bgfi.is, formlega opnuð. Stjórnarmenn félagsins ræddu m.a. við Tryggva og Gunnar um nauðsyn þess að fjölga ungum blóðgjöfum, bæði norðan og sunnan heiða og gengust  þeir félagar inn á að gerast tengiliðir Blóðgjafafélagsins á Akureyri. Að sögn Ólafs Helga eru yfir 3.300 félagar í Bljóðgjafafélagi Íslands.

Yfir 1.000 blóðgjafar, á aldrinum 18-65 ára, eru á skrá hjá Blóðbankanum á Sjúkrahúsinu á Akureyri, að sögn Vilborgar Gautadóttur og fer þeim fjölgandi. Á síðasta ári fjölgaði blóðgjöfum um 130. Alls gáfu 667 blóðgjafar blóð á Akureyri á síðasta ári, alls 1.224 sinnum. Þar af komu karlar 1.035 sinnum en konur 189 sinnum.

Hægt er að gefa blóð á þremur stöðum: Blóðbankanum Snorrabraut 60 í Reykjavík, Blóðbankanum á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í Blóðbankabílnum, sem var með blóðsöfnun á Glerártorgi í vikunni. Blóðbankinn þarf á 70 blóðgjöfum að halda daglega til að anna eftirspurn heilbrigðistofnanna um allt land.

Nýjast