Það eru blikur á lofti, segir Heimir Kristinsson, varaformaður hjá Byggiðn, aðspurður um horfur í byggingariðnaði í vetur á Akureyri. Mörg stór verkefni klárast með haustinu og má þar nefna framkvæmdir við Naustaskóla sem SS Byggir er með. Margir minna félagsmanna eru búnir að tryggja sig með haustið og fram yfir áramótin en það er meiri óvissa seinni part vetrar. Með fullri virðingu fyrir Akureyrarbæ sem hefur staðið sig vel eftir hrun að þá eru þeir aðeins að draga úr verkefnum núna sem hafa verið driffjöðurinn í byggingariðnaðinum á svæðinu. Það fer að vanta fleiri verkefni. Nú ætla ég ekkert að setja neitt út á Akureyrarbæ sem hefur staðið sig vel í að halda uppi atvinnu í byggingarstarfssemi í bænum en núna þegar þeir stoppa að þá kemur eyða, segir Heimir.
Aðspurður um hvort veruleg hætta sé á hópuppsögnum í byggingariðnaðinum í vetur segir Heimir það alls óvíst. Ég get ekki alveg lagt mat á það eins og stendur. Það er enn að draga úr atvinnuleysi í greininni og ekki verið færri á atvinnuleysisskrá í langan tíma en í síðasta mánuði. En það gæti verið tímabundið ástand. Við vitum að fyrstu þrír mánuðirnir eftir áramót eru þeir erfiðustu hjá okkur og óvissan er mest yfir þessa mánuði, segir Heimir.