Björn S. Lárusson hefur verið ráðinn sveitarstjóri sameinaðs sveitarfélags Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps frá og með 1. september 2022.
Ráðningarsamningur við hann verður tekinn til staðfestingar á næsta sveitarstjórnarfundi.
Starf sveitarstjóra var auglýst þann 16. júní sl. og bárust 4 umsóknir um starfið. Ráðningaferlið var unnið í samstarfi við ráðningaþjónustu Mögnum á Akureyri.
Björn er með B.Sc. próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og markaðsmál og nam skipulagsmál ferðamála í Lillehammer í Noregi. Auk þess hefur hann stundað nám í samskiptum, almannatengslum og verkefnastjórnun. Björn er menntaður leiðsögumaður og hefur starfað sem slíkur í fjölmörg ár.
Hann hefur sinnt starfi skrifstofustjóra í Langanesbyggð og verið þar staðgengill sveitarstjóra. Björn hefur víðtæka stjórnunar- rekstrar- og verkefnastjórnunarreynslu m.a. í tengslum við uppbyggingu hótela hérlendis og erlendis. Hann var framkvæmdastjóri samfélagssamskipta og almennatengsla hjá Bechtel á Reyðarfirði í tengslum við uppbyggingu álvers Alcoa. Björn var markaðs- og atvinnufulltrúi Akraneskaupstaðar um árabil og kom þar meðal annars að stefnumótun og verkefnum í tengslum við opnum Hvalfjarðarganga.
Einnig var Björn fréttamaður, fréttaritari og dagskrárgerðarmaður hjá Rúv í 12 ár. Björn er kvæntur Eydísi Steindórsdóttur.