Ávaxtavín og aðrir blandaðir drykkir með kolsýrubiti (gosbjórar) auk sídera eru mjög vinsælir í dag og sala þeirra eykst gríðarlega mikið á sumrin miðað við aðra árstíma. Bjórinn er þó alltaf söluhæstur en um 80% af því magni sem við seljum á hverjum tíma er bjór, segir Einar Pálsson aðstoðarverslunarstjóri í Vínbúðinni á Akureyri. Jafnan er mikill erill í vínbúðum landsins á sumrin, enda grillvertíðin og útilegur í hámarki með tilheyrandi gleðskap.
Neysluvenjur landans hvað vín varðar eru þó breytilegar eftir árstíðum og aldri. Blaðamaður Vikudags settist niður með Einari yfir kaffibolla og forvitnaðist um vínmenningu landans.
Einnig eykst sala á hvítvíni töluvert á sumrin. Það er eins og fólk telji meiri léttleika vera yfir hvítvíninu en rauðvíninu. Yfir sumarið sér maður einnig mikla aukningu í sölu á kassavíni fólk kaupir kassavín jafnt og þétt yfir veturinn en svo þegar sumarið kemur, virðist fólk skipta í meira mæli yfir í kassavín. Það getur verið að fólk telji þessar umbúðir henta betur til dæmis í ferðalög eða sumarbústaðinn.
Nánar er rætt við Einar í prentútgáfu Vikudags.