Björgunarsveitir aðstoðu fólk í vanda á Víkurskarði

Mikil ofankoma hefur verið á Eyjafjarðarsvæðinu frá því í gærkveldi og uppúr miðnætti óskuðu vegfarendur á Víkurskarði aðstoðar vegna ófærðar og óveðurs er þar væri.  Björgunarsveitin Týr á Svalbarðsströnd, Þingey í Þingeyjarsveit og Súlur frá Akureyri brugðust við og hafa félagar í þessum sveitum verið að störfum í alla nótt við að aðstoða fólk við komast niður.  

Notuðst þeir við 5 björgunarsveitarbifreiðar og snjóbíl. Var fólkið ferjað niður af Skarðinu og þaðan flutt til Akureyrar í björgunarsveitarbifreiðum og rútu sem hafði verið send til móts við hópinn.  Tæplega 20 bifreiðar voru skildar eftir á Víkurskarði og um 50 manns flutt úr þeim til Akureyrar. Aðgerðinni lauk um kl. 08:00 í morgunsárið.  Víkurskarð sem og leiðin til Grenivíkur eru ófær, þá er þæfingur á leiðinni til Dalvíkur og leiðin á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er lokuð vegna snjóflóða.

Skemmtanahald gekk áætlega fyrir sig á Akureyri í nótt þrátt fyrir ofankomuna, margt var á skemmtistöðum bæjarins og féllu fjöldamörg verkefni til hjá lögreglu.  Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur  og reyndist hann einnig hafa neytt kannabisefna.  Var hann sviptur ökuréttindum.

Nýjast