Bjóða upp á nám í fisktækni

Menntaskólinn í Tröllaskaga. Mynd tekinn af heimasíðu skólans.
Menntaskólinn í Tröllaskaga. Mynd tekinn af heimasíðu skólans.

Menntaskólinn á Tröllaskaga mun bjóða upp á nám í fisktækni í haust en um nýtt nám til stúdentsprófs er að ræða. Þar verður áhersla lögð á íslenskan sjávarútveg sem eina af undirstöðu atvinnugreinum Íslendinga og mikilvægan þátt í menningu okkar og arfleið. Í náminu verður auk kjarnagreina boðið upp á áfanga í sjávarútvegsfræðum, vinnuvistfræði, námstækni, fiskvinnslu og rekstri fiskvinnslufyrirtækja.

Þá er lögð rík áhersla á vinnustaðanám og tengsl við fyrirtæki og stofnanir. Hægt verður að velja áfanga í sjávarlíffræði, umhverfisfræði og matvælafræði. Í boði verður námsleið til stúdentsprófs ásamt styttri námsleið í fiskvinnslu til framhaldsskólaprófs. Námið leggur góðan grunn fyrir starfsfólk í fiskiðnaði en einnig þá sem vilja undirbúa háskólanám. 

Nýjast