Bjarki Gíslason, frjálsíþróttamaður frá UFA, varð í fimmta sæti á Norðurlandamóti unglinga í
fjölþrautum sem haldið var í Danmörku um helgina. Bjarki fékk alls 6.549 stig á mótinu en það var Svíinn Douglas Stenberg sem
sigraði með 6.847 stig.
Að nýloknum þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga er við hæfi að hugsa um liðna tíð og fagna frelsi og áhyggjuleysi æskuáranna. Lífinu sem foreldrar mínir gáfu mér og það öryggi sem ég ólst upp við. Heimurinn virtist svo einfaldur þá, enda forréttindi að alast upp í litlu samfélagi norður á hjara veraldar. Húsavík „my hometown“ er og var svo sannarlega nafli alheimsins.
„Eigum við ekki að segja að við vinnum eftir tveggja ára plani,“ segir Benedikt Grétarsson hjá Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit. Nú í vikunni vakti flutningur á hinu sögufræga BSO húsi frá Akureyri og að Jólagarðinum mikla athygli. Enn er óráðið á hvern hátt húsið verður nýtt í framtíðinni.
Framkvæmdasýslan- Ríkiseignir hefur valið tilboð Reita fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið verður við Þursaholt 6 og um 9.100 fermetrar að stærð. Þar verður rými fyrir 140 íbúa.
Bæjarráð Akureyrar hefur falið bæjarstjóra að kalla eftir nánari upplýsingum frá Vegagerðinni vegna siglinga ferjunnar Sæfara, en ákveðið var nýverið að fella niður fimmtudagsferðir skipsins á tímibili frá miðjum janúar fram í miðjan maí. Hlaut sú ákvörðun lítinn hjómgrunn meðal íbúa eyjarinna.
Skipulagsráð Akureyrar hefur samþykkt að biðsvæði fyrir leigubíla verði við Túngötu í miðbæ Akureyrar. Það verði gert til reynslu til 1. október 2026. Áður hefði skipulagsráð kynnt tillögu þessa efnis fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu og bárust tvær athugasemdir.
Það var sannkallaður handagangur í öskjunni á Akureyri í vikunni. Tvö risastór uppbyggingarverkefni á sviði heilbrigðisþjónustu litu loks dagsins ljós sitt hvoru megin við sjálfan þjóðhátíðardaginn. Síðastliðinn mánudag var greint frá því að Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefðu tekið tilboði fasteignafélagsins Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Þursaholti sem mun rúma 140 íbúa. Á fimmtudaginn sem leið var svo tekin fyrsta skóflustunga að nýrri legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAK) samhliða undirritun samnings um jarðvinnu framkvæmdanna.
„Þetta sendir óskýr skilaboð til þeirra sem vinna að uppbyggingu millilandaflugs um Akureyri og Egilsstaði. Uppbygging nýrra flugleiða krefst langtímahugsunar, stöðugleika og fyrirsjáanleika,“ skrifar Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri í færslu á facebook síðu sinni. Tilefnið var umræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi.