Fjórða umferð 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu hefst í kvöld með fimm leikjum þar sem Þór og KA
verða í eldlínunni. Á Þórsvelli tekur Þór á móti Víkingi R., en KA sækir botnlið Njarðvíkur
heim á Njarðtaksvöllinn. Báðir leikirnir hefjast kl. 19:00. Erfitt verkefni bíður Þórs í kvöld þar sem
Víkingur hefur farið vel af stað í deildinni og er í öðru sæti með sjö stig, þremur stigum meira en Þór sem situr í
sjötta sæti. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, á von á jöfnum leik á Þórsvelli í
kvöld.
„Þetta verður örugglega spurning um eitt mark öðru hvoru megin og við bíðum bara spenntir eftir leiknum,” segir Lárus, en
lengra viðtal við Lárus Orra má lesa í nýjasta tölublaði Vikudags.
Aðrir leikir kvöldsins í 1. deildinni eru:
Fjölnir- Þróttur R.
HK- ÍR
Leiknir R.- ÍA