Beltagrafa valt fram af kletti

Mikil mildi verður það að teljast að vélamaðurinn sem var að vinna á Komatsu beltagröfu frá jarðvinnuverktakanum Árna Helgasyni í Ólafsfirði slapp ómeiddur þegar grafan hans valt fram af um 2-3 metra hárri klettabrún við þjóðveginn rétt sunnan við Kristnes í Eyjafirði um hádegisbilið í dag. Gröfumaðurinn var að vinna á gröfunni ofan á klettasillu þar sem verið er að breikka veginn þegar grafann rann á hlið niður og fram af brúninni. Gröfumaðurinn náði að stökkva út úr gröfunni en grafan sneri þannig að húsið á henni vísaði ekki fram á brúnina heldur upp í hlíðina. Nú síðdegis var verið að vinna í því að rétta beltagröfuna við, ná henni af slysstað og kanna skemmdir.

Nýjast