Ekki liðu nema þrír dagar frá því að björgunarbátur var tekinn í notkun í Grímsey að hann fékk fyrsta verkefnið.
Björgunarsveitin Sæþór var kölluð út um í gær vegna vélavana strandveiðibáts. Báturinn var staddur um eina sjómílu suður af Grímsey. Fóru þrír félagar á björgunarbát Sæþórs til móts við bátinn og drógu hann til Grímseyjar og voru komnir með hann í höfn rúmum hálftíma eftir að útkallið barst.
Björgunarbáturinn reyndist vel, þrátt fyrir 8-10 metra vindhraða og krappa kviku.
Deginum áður höfðu tveir félagar Sæþórs sótt annan strandveiðibát sem var vélavana en hann var staddur 7-8 sjómílur frá Grímsey. Þá var notaður báturinn Konráð sem er í eigu nokkura félaga Sæþórs í Grímsey.