Baráttan við skógarkerfil heldur áfram í Eyjafjarðarsveit

Í Eyjafjarðarsveit eru menn á þriðja ári átaksverkefnis við eyðingu skógarkerfils í sveitinni. Reynslan hefur sýnt að til að vinna bug á kerflinum þurfi að aleitra þannig að annar gróður drepst á því svæði sem eitrað er. Með þeim hætti deyr kerfillinn, en fræin lifa í jörðinni og því þarf að fylgja eftir með eitrun þar til seinasta plantan fellur. Kerfillinn er illgresi sem engu eirir og því þarf að reyna að hefta útbreiðslu hans og skilja ekki eftir uppeldisstöðvar óáreittar.  

Grettir Hjörleifsson, verktaki átaksverkefnis um eyðingu kerfils í Eyjafjarðarsveit, mætti á síðasta fund umhverfisnefndar til að ræða um framgang verkefnisins. Fengist hefur tveggja milljóna króna framlag frá ríkinu til átaksins og dugar það vel til að eitra meðfram vegum. Þá var gert ráð fyrir 1,5 milljón króna til verkefnisins frá sveitarfélaginu, en þá einkum ef ekki fengist framlag frá ríkinu. Sumir bændur létu eitra hjá sér í fyrra, en aðrir vilja ekki kosta neinu til, segir í bókun umhverfisnefndar. Nágrannasveitarfélögin hafa kostað eitrun að öllu leyti sjálf. Árangur eyðingarinnar er nokkuð góður, en mikilvægt er að fylgja verkefninu vel eftir svo verkið sé ekki unnið fyrir gíg. Það er því tillaga nefndarinnar að í ár verði eitrað í öllu sveitarfélaginu íbúum að kostnaðarlausu. Þó gæti verktaki þess að heildarkostnaður fari ekki yfir 3,5 milljónir króna. Lítur nefndin svo á að með þessu sé verið að spara til framtíðar.

Nýjast