Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lögð fram tillaga um að veita styrk til hjálparstarfsins vegna náttúruhamfarana á
Haítí. Upphæðin verður falin Rauða krossi Íslands til ráðstöfunar. Bæjarráð samþykkti styrkveitingu að
upphæð 100 krónur per íbúa Akureyrar vegna hjálparstarfsins. Heildarupphæðin verður kr. 1.753.000 og verður tekin af styrkveitingum
bæjarráðs.