Bæjarráð frestaði afgreiðslu á samningi við Bílaklúbb Akureyrar

Meirihluti íþróttaráðs samþykkti fyrir sitt leiti á fundi sínum nýlega drög að uppbyggingar- og rekstrarsamningi við Bílaklúbb Akureyrar. Fundargerð íþróttaráðs var til umfjöllunar á fundi bæjaráðs í morgun, þar sem afgreiðslu var frestað. Edward H. Huijbens áheyrnarfulltrúi VG í bæjarráði lagði fram að eftirfarandi spurningar, sem Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs svaraði.  

1.      Þessi samningur hefur mikið fordæmisgildi fyrir önnur smærri íþrótta- og tómstundafélög hér í bæ.

a.      Spurt er því hvort bærinn sé tilbúinn til að gera sambærilega samninga við Nökkva, KKA, Létti og Umhverfis og útilífsmiðstöð skáta að Hömrum, svo nokkrir séu nefndir?

Svar formanns bæjarráðs:

Fordæmið er ekkert í þessum samningi. Hann er byggður upp á þeim samningum sem þegar hafa verið gerðir við önnur íþróttafélög í bænum. Samningurinn er í samræmi við samning sem gerður var við ÍBA varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja 30. janúar 2006.

Á þeim tímapunkti þegar við teljum að bærinn hafi fjárhagslegt svigrúm til, þá sjáum við ekkert því til fyrirstöðu að samningar verði gerðir með þessum hætti við önnur félög, sem eftir því leita. Samkvæmt stefnuskrá L-listans, lista fólksins, um íþróttamál er horft til að bæta aðstöðu Nökkva og KKA á kjörtímabilinu. Hestamannafélagið Léttir hefur sambærilegan rekstrarsamning við bæinn sem undirritaður var 19. september 2008. Bærinn byggði Reiðhöllina upp með svipuðu sniði í samstarfi við Létti. Hvað varðar uppbyggingu að Hömrum gerum við ráð fyrir að bærinn komi að því áfram eins og hann hefur gert.   

2.      Þessi samningur veitir áhugamannafélagi í bænum (BA) leyfi til að slá lán upp að 50 milljónum króna með veði í fyrirheitum bæjarins á greiðslum. Vart mun finnast sá lánveitandi sem mun fúlsa við slíku kostaboði.

a.      Spurt er því hvort bærinn sé tilbúinn að gangast í ábyrgðir fyrir önnur félög með sambærilegum hætti og leyfa þeim að taka veð í útsvarsgreiðslum til bæjarins?

Svar formanns bæjarráðs:

Þarna er um misskilning að ræða. Bærinn er ekki að gangast undir ábyrgð á lánum fyrir BA, enda bannað með lögum að sveitarfélög veiti slíka ábyrgð. Í þessari grein samningsdraganna er horft til þess samnings sem gerður var við Golfklúbb Akureyrar sbr. 5. gr samnings frá 26. mars 2007. Þar af leiðandi er ekkert nýtt á ferðinni  í gerð slíkra samninga við íþróttafélög. Skýr skilaboð til aðila eru samt þau að vaxtagjöld af þannig láni getur á engan hátt rúmast innan framlaga bæjarins og skal að fullu fjármagnað af viðkomandi félagi.

3.      Í samningum felast fyrirheit um uppbyggingu á svæðinu uppá allavega 44 milljónir króna á næstu mánuðum.

a.      Spurt er því hvort bærinn sé reiðubúinn til að verja þessi útgjöld til uppbyggingar á svæðinu meðan skera þarf niður í skóla- og velferðarmálum bæjarins?

Svar formanns bæjarráðs:

Það hefur ætíð verið stefna bæjarstjórnar að fjármagna ekki rekstur málaflokka með láns- eða framkvæmdafé. Því hefur þessi samningur ekki áhrif á aðhaldsaðgerðir í skóla og velferðarmálum. Einnig má geta þess að hvað viðkemur rekstrarhluta samningsins verður hann fjármagnaður innan úthlutaðs ramma IRA og kallar því ekki á aukin útgjöld.

Samkvæmt samningsdrögum eru framlög bæjarins, allt til ársins 2013, fyrst og fremst uppkaup á landi, sem þegar hafa átt sér stað, möl og svo um 16000 m² af malbiki.  Samtals reiknað í samningi að verðmæti um 110 milljónir. Fyrsta peningalega greiðsla samkvæmt samningi þessum er 20 milljónir árið 2013.

4.      Ekki liggja fyrir samhliða samningnum gögn um rekstur á svæðinu og hvernig hann eigi að standa undir uppbyggingu, utan þess að allur mögulegur hagnaður renni til BA.

a.      Ef fyrir liggur sýn og framreikningar á rekstri á svæðinu er óskað eftir að þau gögn fylgi með til að bærinn geti tekið upplýsta afstöðu.

Svar formanns bæjarráðs:

Viðskiptaáætlun var gerð í ágúst 2009. Ekki hefur verið gerð ný rekstrar- og uppbyggingaráætlun fyrir svæðið í heild sinni. Við höfum kallað eftir að fyrirliggjandi áætlanir verði uppfærðar. Heilt yfir er einsýnt að um stefnubreytingu í samskiptum við íþrótta- og tómstundafélög í bænum er að ræða og því óskað eftir því að málið hljóti fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.

Heilt yfir er einsýnt að um stefnubreytingu í samskiptum við íþrótta- og tómstundafélög í bænum er að ræða og því óskað eftir því að málið hljóti fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.

Svar formanns bæjarráðs:

Þessi fullyrðing er alfarið röng og bent er á Samskiptasamning ÍBA og bæjarins varðandi uppbyggingu mannvirkja í samstafi við íþróttafélög frá 30. janúar 2006.

Nýjast