Aukning í sölu fasteigna á Akureyri

„Staðan er nokkuð góð og árið hefur verið gott hingað til,“ segir Björn Guðmundsson á Fasteignasölunni Byggð, um stöðu mála á fasteignamarkaði á Akureyri. Fasteignamarkaðurinn er á uppleið en þó er reiknað með að rólegt verði í sumar, sem Björn segir árstíðabundna sveiflu. „Það var aukning í sölu á milli áranna 2010-2011 og mér sýnist að það ætli að verða aukning á milli áranna 2011-2012,“ segir Björn. Í svipaðan streng tekur Sigurður Sveinn Sigurðsson hjá Hvammi. „Almennt er fasteignamarkaðurinn búinn að vera líflegur, þó við reiknum með að eitthvað gæti hægst á yfir hásumarið. Varðandi fasteignaverðið þá er merkjanleg hækkun og sérstaklega í betri eignum og nýlegum,“ segir Sigurður.

Báðir eru þeir bjartsýnir á að þessi góða staða haldi dampi út árið. „Ef marka má fyrri part ársins ætti haustið að verða nokkuð gott. Þessi byrjun á árinu er eitthvað sem menn telja að hægt sé að byggja á,“ segir Björn. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í júní sl. var 37. Heildarveltan var 913 milljónir og meðalupphæð á samning 24,7 milljónir króna, segir á vef Þjóðskrár.

Nýjast