Uppselt er á tónleika til heiðurs söngvaranum Freddie Mercury í Hofi þann 8. september nk. en vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukatónleikum sama kvöld kl. 22:00. Miðasala hefst í fyrramálið, föstudaginn 10. ágúst, kl. 09:00. Átta þúsund gestir hafa séð tónleikana en tónleikarnir í Hofi verða þeir allra síðustu.
Stórskotalið íslenskra tónlistarmanna stígur á stokk og flytur lög Mercury með sínu nefi. Með aðal sönghlutverk fara Eiríkur Hauksson, Magni, Friðrik Ómar , Eyþór Ingi og Matthías Matthíasson. Gestasöngkona verður Hulda Björk Garðarsdóttir óperusöngkona. Auk þess verður tólf manna rokkhljómsveit og raddsveit.
Nánari upplýsingar um miða má finna á www.menningarhus.is og í síma 450-100.