Ágúst Guðmundsson hjá Fjarkönnun ehf. segir að fyrirtæki sitt hafi verið í samstarfi við dr. Ulrich Munzer prófessor við háskólann í Munchen í Þýskalandi, varðandi fjarkönnunargögn til vöktunar á breytingum á umhverfinu. "Öll þessi gögn eru í mælanlegu formi, þannig að við getum skoðað breytingar mjög nákvæmlega frá einum tíma til annars. Einnig erum við með gögn sem sýna svæðið við Mýrdalsjökul. Allt er þetta óháð birtu og veðri, gervitunglið fer yfir að morgni og að kvöldi og það er á nákvæmlega sama stað á ellefu daga fresti. Við þurfum því engar stöðvar á landinu þótt við séum með endurvarpsspegla til að staðsetja myndirnar en gervitunglið er í 514 km fjarlægð frá jörðu. Við fáum mikla námkvæmi, annars vegar getum við farið með gögn upp í þriggja metra nákvæmni og hins vegar í eins metra nákvæmni."
Ágúst segir það vissulega áhugavert fyrir fólk að skoða þessar myndir, enda séu þetta framtíðargögn til að skoða breytingar á umhverfinu, þar sem hvorki birta né veður hafa áhrif. "Þetta eru myndir með þeirri nákvæmni og þeirri staðsetningu, að það er alltaf hægt að leggja myndir ofan á hverja aðra til þess að skoða þær breytingar sem eiga sér stað. Á ellefu daga fresti fer gervitunglið yfir landið og þannig getum staðsett okkur mjög vel yfir svæðið. Það sem við erum fyrst og fremst að hugsa um er vekja áhuga hér á svæðinu á því að það er vel hægt að vera með umhverfisvaktað svæði hér í Eyjafirði. Hér eru aðilar, skólar og stofnanir, sem geta sameinast í þessum málum. Hér fyrir utan Flugsafnið höfum við yfirsýn yfir það hvernig flugið er í dag, svo hér á safninu sjáum við hvernig flugið var og í texta sjáum við líka hvað gerðist. Þegar við förum út, kemur svo spurningin hvað gerist næst. Það sama á við þegar við tölum umhverfi okkar. Við öflum upplýsinga um það hvað gerðist og hvað gerist næst. Það hefði enginn trúað því fyrir 100 árum að hér væri flugvöllur eða flugsafn. Hvað þá að innan 100 ár verði hér geimskip, eða vöktum á Norður Atlantshafi," sagði Ágúst.
Flugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli er opið daglega frá kl. 11-17 til 31. ágúst nk. Frá 1. september - 31. maí er opið laugardaga frá kl. 11-17 og á öðrum tímum eftir samkomulagi.