Árleg fjölskyldu- og skeljahátíð í Hrísey

Fjöldi fólks hefur tekið þátt í fjölskyldu- og skeljahátíðinni í Hrísey á undanförnum árum.
Fjöldi fólks hefur tekið þátt í fjölskyldu- og skeljahátíðinni í Hrísey á undanförnum árum.

Hin árlega fjölskyldu- og skeljahátíð verður haldin í Hrísey um helgina, eða dagana 13.-15. júlí og það verður því mikið um dýrðir í eynni næstu daga. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Gleðisveitin Hundur í óskilum ætlar að taka forskot á sæluna, með stórtónleikum í Brekku í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 21.00. Fleiri snjallir tónlistarmenn og skemmtikraftar munu stíga á stokk í Hrísey á laugardagskvöld og má þar nefna Heimi Ingmarsson, Gylfa Ægissson, Rúnar Þór og Megas, Hjalta Jónsson og Láru Sóleyju Jóhannsdóttur, Bráðavaktina og Örn Árnason. Heimir mun jafnframt stjórna brekkusöng þegar kveikt verður í varðeldinum á laugardagskvöld. Fyrr um daginn verður Skeljahátíð á svæðinu, þar sem boðið verður upp á skeljasúpu, litla kirkjutröppuhlaupið, fjöruferð með Skralla trúð, söngvarakeppni barna og útiskákmót á vegum Skákfélags Akureyrar, svo eitthvað sé nefnt. Það er Ferðamálafélag Hríseyjar sem stendur að hátíðinni. Nánari upplýsingar er að finna á www.hrisey.net.

 

Nýjast