Það sem af er árinu hafa 339 sjúkraflug verið farin á vegum Slökkviliðs Akureyrar og 359 sjúklingar fluttir í þessum ferðum. Þetta er sambærilegur fjöldi og á sama tíma í fyrra er fram kemur á vef Slökkviliðs Akureyrar. Allt árið 2011 voru farin 474 sjúkraflug og fjölgaði þeim um 7% frá árinu 2010. Fjöldi sjúkrafluga náði hámarki árin 2007 (493 flug) og 2008 (494 flug) en þeim fækkaði um hundrað árið 2009, þegar þau voru 395. Flugum hefur verið að fjölga jafnt og þétt frá þeim tíma.