Annir voru í sjúkraflutningum á sjötta tímanum í gær hjá Slökkviliði Akureyrar. Tveir bílar fóru í neyðarflutning fram í Eyjafjörð. Á meðan á því stóð var óskað eftir sjúkrabíl út við Svalbarðseyri og í kjölfarið sjúkrabíl inn í Öxnadal. Aukamannskapur var ræstur út í verkefnin ásamt því að einn sjúkrabíll var til taks við æfingu knattspyrnuliða á Þórsvelli, en Evrópuleikur fer þar fram í kvöld. Þetta kemur fram á vef slökkviliðsins.