Vill aðalfundurinn sérstaklega benda þar á mikilvægi markaðsstofa landshlutanna. Öllum er ljóst í dag vaxandi mikilvægi ferðaþjónustunnar og þeirrar staðreyndar að engin önnur atvinnugrein hefur sömu möguleika til gjaldeyris‐ og atvinnusköpunar í framtíðinni, ef rétt er að málum staðið, segir í ályktun fundarins.
Unnur Halldórsdóttir var kjörin nýr formaður Ferðamálasamtaka Íslands og tekur hún við af Pétri Rafnssyni sem gegnt hefur formennsku 12 undanfarin ár. Voru Pétri færðar þakkir á fundinum fyrir hans góðu störf. Unnur sem nú á og rekur Hótel Hamar í Borgarfirði ásamt Hirti Árnasyni , rak m.a. áður Shell stöðina í Borganesi og var formaður Heimilis og skóla um árabil. Unnur á því að baki langa reynslu bæði í ferðaþjónustu og félagsmálum.
Undanfarið hefur farið fram mikil endurskipulagning á málefnum ferðaþjónustunnar innan stjórnsýslunnar. Ferðamálin sem áður heyrðu undir Samgönguráðuneytið eru nú í nýju Atvinnumálaráðuneyti og markaðsstofur hafa verðið settar á fót í öllum landshlutunum þar sem markvisst er unnið að heildrænni markaðssetningu hvers landshluta fyrir sig með megináherslu á ferðamálin. Með þessu má segja að hlutverk Ferðamálasamtaka Íslands hafi breyst. Samtökin standa í raun á tímamótum. Mikilvægt er að efla markaðstofurnar og styrkja, kalla eftir umræðum um framtíðaðarstefnu ferðamála, virkja grasrótina og vekja fólk í þjónustustörfum um vitundar um hversu víðtæk ferðaþjónustan er. Verkefnin framundan eru því næg og til að sinna þeim með formanni og stjórn hefur nýr starfsmaður verið ráðinn, Eva Úlla Hilmarsdóttir. Töluverðar umræður urðu á fundinum m.a. um gjaldtöku á ferðamannastöðum og hvernig standa ber að uppbyggingu og umhirðu á þeim um gæðamál, menntun, grasrótarstarfið og margt fleira. Allar spár benda til að árið 2020 verðir ferðamenn á Íslandi orðnir yfir ein milljón á ári. Við höfum tíu ár til undirbúa komu þessara gesta.
Stjórn FSÍ lagði til við aðalfundinn að afhenda vefþjónustukerfi, sem FSÍ hefur kostað hjá hugbúnaðarfyrirtækinu IGM Atóm fyrir markaðsstofur landshlutanna, til Ferðamálastofu til eignar, varðveislu og þróunar. Stjórnin vonar að þessi ákvörðun leiði til farsællar þróunar á samstarfi markaðsstofa landshlutanna og Ferðamálastofu og auki öryggi og auðveldi upplýsingagjöf til erlendra jafnt sem innlendra ferðamanna um Ísland.