Samkvæmt upplýsingum Ólafs Ólafssonar dómstjóra voru hefðbundin einkamál alls 724 á síðasta ári. Svokölluð þjóðlendumál voru í fyrsta skipti fyrirferðarmikil en þau komu af fullum þunga til kasta dómstólsins í fyrra.
Sakamál voru samtals 425, en þar af voru 329 mál frá lögreglustjóranum á Akureyri og 66 mál frá lögreglustjóranum á Húsavík. Ólafur segir að helsta breytingin á milli ára sé sú að alvarlegum ákærumálum frá ríkissaksóknara hafi fjölgað töluvert. Þau voru 30 á síðasta ári en 9 árið áður, en þar er m.a. um að ræða alvarlegar líkamsárásir og kynferðisbrotamál. Þá voru rannsóknarúrskurðir vegna sakamála alls 23.
Gjaldþrotamálum fækkaði hins vegar á milli ára, að sögn Ólafs. Alls bárust 88 gjaldþrotabeiðnir í fyrra og þar af var úrskurðað í 49 málum. Í öðrum tilfellum voru mál afturkölluð eða um þau samið. Í 41 máli sem úrskurðað var í, var um að ræða hlutafélög eða einkahlutafélög en í 8 tilvikum var um að ræða mál einstaklinga. Þá segir Ólafur að ný mál sem tengjast svokallaðri greiðsluaðlögum hafi verið 26 talsins. Loks voru allnokkur mál afgreidd á síðasta ári sem vörðuðu annarskonar ágreining. Má þar t.d nefna mál um meðferð dánarbúa, lögræðismál einstaklinga og mál er varða þinglýsingar á fasteignum.