Allt að 200 milljónum króna varið til viðhalds mannvirkja

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að efna til sérstaks átaks í viðhaldi mannvirkja í eigu sveitarfélagsins. Mikilvægt er að hafist verði handa við viðhald stúku á Akureyrarvelli samkvæmt fyrirliggjandi áætlun og að jafnframt verði ráðist í viðgerðir á girðingu Listigarðsins.    

Að öðru leyti er stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og framkvæmdaráði falin umsjón með átakinu. Allt að 200 milljónum króna verði veitt til verkefnisins á þremur árum, þar af verði 50 milljónum króna varið til þess á þessu ári og er upphæðinni vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Nýjast