Íbúar Akureyrar voru samtals 18.052 um mánaðamótin, en um áramótin voru íbúar sveitarfélagsins 17.966. Þeim hefur því fjölgað um 86 á hálfu ári. Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi segir að þessar tölur séu í takt við áætlanir.
Við höfum til þessa reiknað með að íbúum fjölgi um 200 á árinu og þróunin á fyrri helmingi árs gefur til kynna að það markmið komi líklega til með að standast. Síðustu vikurnar hefur verið töluvert um fyrirspurnir frá fólki sem er að hugsa um að flytja hingað, enda vantar fólk víða til starfa. Ég veit til dæmis um nokkur fyrirtæki í málmiðnaði sem geta bætt við sig fólki, þannig að okkur kemur mjög líklega til með að fjölga áfram, segir Sigurður.