Akureyringar spari kalda vatnið

Akureyri.
Akureyri.

Norðurorka biðlar til Akureyringa um að fara sparlega með kalda vatnið þar sem vatnsstaða í miðlunargeymum er komin niður fyrir öryggismörk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurorku, sem birt er á vefsíðu fyrirtækisins. Er fólk hvatt til að vökva ekki að óþörfu á meðan þetta ástand varir og einnig að láta vatn ekki renna að óþörfu við tannburstun, böðun og fleira.

Í gærkvöldi og í morgun hefur verið farið yfir mælingar og notkunarminnstur og ljóst að það er fyrst og fremst mjög mikil notkun bæjarbúa sem veldur því að vatn í geymunum fór niður fyrir öryggismörk. Við skoðun á mælum Hafnarsamlags Norðurlands hefur komið í ljós að stóru skemmtiferðaskipin eru ekki afgerandi þáttur í þessum stóra toppi í gær enda tóku þau ekki eins mikið vatn og áætlað var í fyrstu.

Þegar rýnt er í notkunarminnstur síðastliðinna vikna sést að notkunin hefur farið stigvaxandi og náði hámarki í gær þegar hún fór tugum prósenta umfram það sem vanalegt er á þessum árstíma. Samhliða þessu veldur mikil þurkatíð í sumar því að vatnsból í Hlíðarfjalli og á Glerárdal hafa gefið heldur minna en vanalegt er eða á bilinu 15-20% minna. Þegar þetta tvennt fer saman gerist það að vatnsstaðan í miðlunargeymum fer niður fyrir öryggismörkin, segir á vef Norðurorku.

Nýjast