Akureyri spilar sinn fyrsta heimaleik á árinu í kvöld

Akureyri Handboltafélag leikur sinn fyrsta heimaleik á árinu í kvöld er liðið fær Gróttu í heimsókn í Íþróttahöll Akureyrar kl. 19:00 í N1- deild karla í handbolta. Eftir brotlendinguna gegn FH í síðasta leik eru norðanmenn eflaust staðráðnir í að sanna sig á nýjan leik á heimavelli. Fyrir leikinn í kvöld munar þremur stigum á liðinum, Akureyri hefur 11 stig í 4. sæti deildarinnar en Grótta átta stig í 6.sæti.

Nýjast