Akureyri er spáð þriðja sætinu í N1-deild karla í handbolta en á árlegum kynningarfundi N1-deildarinnar í hádeginu í dag var kunngerð spá þjálfara og forráðamanna liðanna um röð liðanna í deildinni. FH-ingum er spáð deildarmeistaratitlinum og Haukum er spáð öðru sætinu.
Átta lið skipa N1-deild karla og verður leikin þreföld umferð. Fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn, liðið í áttunda sæti fellur og liðið sem hafnar í sjöunda sætinu fer í umspil um að halda sæti sínu í deildinni.
Opnunarleikur N1-deildarinnar í ár verður viðureign Vals og Hauka sem mætast í Vodafone-höllinni á miðvikudagskvöldið. Fyrstu umferðinni lýkur svo með þremur leikjum á fimmtudaginn en þá eigast m.a. við HK og Akureyri í Digranesi.
Spáin sem kunngerð var í hádeginu lítur þannig út:
1. FH 2182.
2. Haukar 2143.
3. Akureyri 1874.
4. Fram 1705.
5. Valur 1466.
6. HK 1197.
7. Selfoss 1048.
8. Afturelding 90